Allt fínt að frétta af okkur hérna í Aarhus.
Palli skrifar og skrifar enda á loka-ritgerðin hans að skilast á þriðjudaginn 2 júní, svo hann er alla daga og langt frameftir við skriftir, er hann með aðstöðu hjá Axel danska frænda sínum og Mette konunni hans.
Axel þjónustar hann eins og kóngi eldar í hádeginu fyrir hann og ég veit ekki hvað og hvað.
Palla bauðst vinna um daginn upp í norður Noregi í bæ sem heitir Hammerfest. Við fórum að líta á aðstæður og litumst svona og svona á staðinn. Þetta er eflaust fínasti bær en að fara frá Aarhus í blóma og þarna uppeftir var pínu viðbrigði, það hefði eflaust verið betra að koma frá Íslandi
Við ákváðum að segja pass við þessu ævintýri og vonum bara að einhver önnur vinna komi í staðinn.
Hulla braggast mjög vel. Pæjan okkar er þriggja og hálfsmánað ótrúlegt en satt (tíminn líður)
Við vorum að tala um það um daginn að hún hefur verið í þremur löndum Danmörku, Íslandi og Noregi geri aðrir betur. Sem betur fer er hún rosalega meðfærileg við allar aðstæður.
Stjáni talar betur og betur íslensku svo það er allt á réttri leið, er hann rosalega glaður með leikskólan sinn og vini, en þrjóskari dreng hef ég ekki kynnst

það hálfa væri nóg skal ég segja ykkur (hvað skildi hann hafa það)
Heimir er sáttur og glaður og gengur vel, hugsar ekki um annað en stelpur og íþróttir þessa dagana. Setur gél í hárið og buxurnar niðrá miðjan rass, svakalegur töffari orðin




Bjössi, Eygló og Heiddi komu í heimsókn til okkar um daginn. Var það alveg magnað, ýmislegt var brasað, það var rosalega tómlegt þegar þau voru farin, svo ég minnist ekki á það að nú þarf ég sjálf að hengja upp þvottinn, brjóta hann saman, moppa og baka kökur og hugsa ein um börnin þetta er ekkert smá álag

Hef ég haft marga góða gesta-aupair en hún Eygló mín sló þeim öllum við

og svo kenndi hún mér að prjóna (geri aðrir betur) eða rifjaði það upp með mér.
Jæja þetta er orðið gott í bili. Heitar kveðjur frá Aarhus í svaðalegum hita. Hjödda og co.
: